Það þarf lítið til að gleðja mig. Þó svo að ný útgáfa af Adobe forritunum teljist ekkert smámál þá er útgáfa CS4 pakkans ekki það sem kætir mig heldur akkúrat ein lítil breyting sem er búið að bæta við Illustrator (og vonandi öll forritin) – Flipar.
Nú hváir alþjóð og spyr: Hvað meinarðu drengur?
Flipar! Þið vitið, eins og í firefox og öllum browserum sem stálu þessari snilld frá þeim. Upp á enskuna heitir það “tabs” eða “tabbed browsing” (prófið það… ýtið núna á Ctrl og T saman) og nú verður hægt að fletta á þennan þægilega hátt í Adobe Illustrator CS4 og ég bókstaflega slefa af eftirvæntingu. Ég veit… ég er einföld sál en allt sem hjálpar vinnuflæðinu í þessum blessuðu myndvinnsluforritum lít ég á sem persónulega gjöf til mín því ég get verið pirraði gaurinn þegar ég er fyrir framan tölvuna.
Lesið þessa skemmtilegu grein um málið á gomediazine.com og njótið þess að vera nördar!
